Success Stories
Bergur Sverrisson
Þegar ég byrjaði í þjálfun hjá Ingimari hafði ég æft Crossfit í 9 ár. Ég var búinn að keppa erlendis og vera í top 10 á mótum með einstaklingum sem voru að keppa á heimsleikunum. Ég var í mjög fínu formi. Ég var búinn að fylgja flottum æfingarplönum í lengri tíma eins og t.d. TTP og TheProgrm.
Ég skráði mig samt í þjálfun. Mig langaði að prófa að vinna með einhverjum með reynslu af keppnisumhverfi á Íslandi og einhverjum með raunverulega ástríðu fyrir sportinu. Síðan við Ingimar byrjuðum að vinna saman höfum við unnið marga sigra.
- Var á palli á Íslandsmótinu í Crossfit
- Varð Lyftingamaður Ársins 2025
- Setti mitt fyrsta Íslandsmet
- Keppti á smáþjóðleikunum með Landsliðinu í Ólympískum lyfingum og vann silfur sem næst stigahæsti lyftarinn (Ásamt því að vinna gull sem stigahæsta liðið)
- Keppti á EM (fyrsta stórmót) þar sem ég setti mitt annað Íslandsmet
- Keppti á HM
- Fór úr 133kg í snörun upp í 141
- Fór úr 155kg í C&J upp í 162 (og úr 155 í Clean í 168)
Það besta við þjálfunina er bara ástríðan sem Ingimar hefur fyrir sportinu, það að það er alltaf hægt að finna leiðir til að vinna í kringum aðstæður og einföld uppseting. Við Ingimar erum ennþá að vinna saman og stefnum á að fara saman á HM í Kína í október 2026. Það sem stendur mest uppúr eru sennilega Training hall æfingar með Karlosi Nasar.
Ég held að þetta sé fyrir alla sem finna það inni í sér að þá langar að taka eitt skref í viðbót í að elta markmiðin sín. Fólk sem er aðeins búið að staðna og langar að hafa einhvern sem fylgir þeim í gegnum stöðnunina. Fólk sem langar að finna nýjar hæðir.
Bergur að taka á móti verðlaunum sem lyftingarmaður ársins 2025.
Hólmfríður Katrín Kjartansdóttir
Er búin að vera í þjálfun hjá Ingimar í næstum því tvö(!!) ár og finnst það eitt og sér segja allt sem segja þarf um það hvort ég mæli með þjálfun hjá honum eða ekki.
Byrjaði í þjálfun hjá Ingimar því mér fannst ég ekki vera að progressa nóg í hefðbundnum woddum og þá sérstaklega hvað varðar flóknari fimleikahreyfingar. Það leið ekki langur tími frá því að ég byrjaði í þjálfun og þar til ég fór að sjá góðan árangur á æfingum. Náði mínu fyrsta bmu, fyrsta rmu, c2b, lærði butterfly hreyfingu og hsw varð meira efficient svo eitthvað sé nefnt.
Á sama tíma og fimleikarnir fóru upp varð ég jafnframt betri í öllum lyftum, hef t.d. bætt clean um 13 kg og snatch um 12 kg. Það sem spilar líka stóran þátt í öllum mínum árangri er matarplanið sem Ingimar er með. Ég miklaði það mikið fyrir mér að vigta matinn minn en forritið sem Ingimar notar og uppsetningin á matarplaninu hans gerir það að verkum að þetta er raunverulega ekkert mál.
Það sem skiptir líka öllu máli er hvað Ingimar er mikill toppgaur. Hann er faglegur, nálgast mann af virðingu og peppar mann þegar maður þarf á því að halda. Hann fær öll mín meðmæli og þjálfun hjá honum er 100% fyrir þá sem vilja leggja meiri metnað í æfingarnar sínar og gera veikleika að styrkleikum.
Hólmfríður missir ekki af æfingu eða máltíð og árangurinn leynir sér ekki!
Haukur Parelius Finnsson
Ég er á mínu öðru ári í einkaþjálfun hjá Ingimari en hef verið í fjarþjálfun áður, bæði hjá öðrum íslenskum þjálfara, sem vísaði mér á Ingimar og einnig hjá erlendum þjálfurum.
Það eru nokkrar ástæður f. því að ég kýs að fjárfesta í einkaþjálfun:
Að mæta ‘bara’ í tíma er tilviljanakennt, ómarkvisst og ómælanlegt og fór ekki vel með mig, sérstaklega ekki taugakerfið. Einstaklingsmiðaða þjálfunin er á móti markviss, með strúktúr og markmið sem eru mælanleg. Prógrammið er aðlagað að mínum styrkleikum og veikleikum (SVÓT-greining) sem skilar meiri árangri en fjöldaprógram eða mæta ‘bara’ í tíma. Það er ótrúlega gagnlegt og gaman að hafa þjálfara í sínu horni, til að leita til eftir ráðum, hvatningu og taktík.
Þjálfunin hjá Ingimari hefur skilað mér ágætis árangri, ég náði td í fyrsta skipti inn í Semi-Finals í ár, hef orðið Íslandsmeistari og unnið Evrópumót í flokki 55-60 ára.
Mikilvægasti árangurinn minn er þó að ég hef haldist mjög heill (sem var ekki þegar ég stjórnaði sjálfur æfingaálagi). Ég er ekki einn heldur með fagmann með mér í liði. Það er svo miklu skemmtilegra og öruggara. Ég skil miklu betur æfingarnar, markmiðin og hvaða kerfi er verið að þjálfa sem er skemmtilegt.
Ég mæli eindregið með einkaþjálfun og Ingimari.
Haukur á European Masters Throwdown 2025 að vinna fyrir niðurstöðunum!
Svanur Þór Vilhjálmsson
Frá því ég byrjaði á prógramminu hjá Inga hef ég séð hellings bætingar hjá mér bæði í cardio, styrk, fimleikum og sé hellings mun á mér líkamlega. Æfingamagnið er frábært og líður manni alltaf vel eftir hverja æfingu, álagið er vel stjórnað og næ ég að recovera vel á milli en næ hellings bætingum. Meiðslatíðnin mín hefur minnkað síðan ég byrjaði og fór úr því að vera áhugamaður í crossfit í keppnis level.
Æfingarnar eru fjölbreyttar og sniðnar af veikleikum manns og lætur hann mann gera æfingar sem ég myndi aldrei gera sjálfur en eru svo mikilvægar. Fæ daglegt feedback sem heldur manni á tánum og fylgist með hvernig gengur á öllum æfingum sem er frábært. ·
Eftir að ég byrjaði hjá Inga hef ég komist inn á Íslandsmótið í Crossfit 2 ár í röð Hef bætt mig það mest í veikleikunum mínum
- Pr í 5k hlaupi um 90sek
- BMU úr 5 -> 20 Óbrotið
- TTB út 10 -> 30+
- 20 mín watt test úr 275 í 305 watt ·
Mér finnst frábært hvernig Ingi kemur inn passlegu æfingamagni. Ég hef verið að ná frábærum árangri og bætingum en kem samt alltaf ferskur á æfingar. Myndi mæla með þessu fyrir alla sem vilja bæta sig og sjá árangur. Sérstaklega ef þú hefur staðnað aðeins þá er þetta fullkomið, því Ingi lætur þig gera nýja hluti sem skilar sér í bætingum.